Get all 4 Árstíðir releases available on Bandcamp.
Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality downloads of Nivalis, Hvel, Svefns og vöku skil, and Árstíðir.
1. |
Ljóð í sand
03:26
|
|||
Við stóra strönd horfir yfir
Og hugsar of langt, of mikið
Og tíminn líður þá breytist svo margt
Sem aldrei neinn hafði fyrir séð
Næstu nótt förum heim
Tökum ekki eftir þeim
Þungu skýjum sem herja á
Sjórinn gengur á land
Skrifa í svartan sand
Ljóðin þín og leyndarmálin mín
Því fleiri stundir sem líða
Hún finnur nú til, of mikið
Og réttir hönd sína segir svo margt
Grætur en fær aldrei svar
Næstu nótt fer ég heim
Varla tek eftir þeim
Þungu skýjum sem herja á
Sjórinn gengur á land
Skrifa í svartan sand
Ljóðin þín og leyndarmálin mín
Vikingur
|
||||
2. |
||||
Djúpt í fylgsnum hugar
Sorginni hann leynir
Á hana ekkert dugar
Kosti enga greinir
Sama hvað hann reynir
Áhrif hefur á hans
Ákvarðanir allar
Sjást í skini mánans
Brestir hans og gallar
Myrkrið til hans kallar
Deginum feginn hann er
Stund milli stríða
En er dagur hallandi fer
Aftur er þjakaður kvíða
Slikju næturinnar
Umvafinn hann liggur
Fangi sorgar sinnar
Hugsar bara hyggur
Hrakinn bæði og hryggur
Sú hugsun liggur, læðist
Að ófreskja hans vanda
Sem stjórnlaust áfram æðir
Um sálarinnar sanda
Að endingu mun granda
Deginum feginn hann er
Stund milli stríða
En er dagur hallandi fer
Aftur er þjakaður kvíða
|
||||
3. |
Lost in You
03:29
|
|||
4. |
Days & Nights
01:45
|
|||
I've travelled far
And I've stayed in one place
I've spoken to the night
And I've kept silent for days
The changing of colours
The imposing of age
I've spoken to the night
And I've kept silent for days
When summer becomes fall
It happens to us all
So many reasons
And in so many ways
I've spoken to the night
And I've kept silent for days
Going round
I'm going round in my head
Going round in my head
Is just how much I'll miss it when I'm dead
|
||||
5. |
Orð að eigin vali
03:39
|
|||
Bjartur er bjarminn
Sem brosir við nú
Hjartað heltekur
Hugurinn dreymir
Brátt biðin fer
Gæti banvæn orðið sú
Sú mikla mæða
Sem maðurinn leynir
Lævís oft læddist
Svo lítið bæri á
Ætti´að forðast þá freistni
Sem fær á hann sótt
Svikult var svarið
Það hann ei einn sá
Eftir orðin honum
Verður ekki rótt
Þetta eitt, hann þráir svo heitt
Skugga dregur fyrri tíðar
Þessi orð að eigin vali
Hafa ei heyrst síðar
Ólgast nú óttinn
Því óleystur er
Til þess setur traust
Að allt tíminn kali
Þá brosið breitt
Létt og glaður ber
Eftir orð
Að eigin vali
Þetta eitt, hann þráir svo heitt
Skugga dregur fyrri tíðar
Þessi orð að eigin vali
Hafa ei heyrst síðar
|
||||
6. |
Á meðan jörðin sefur
02:56
|
|||
Meðan jörðin sefur
Öll umlukin kyrrð og ró
Vakir einn en dreymir þó
Starir upp í ský
Huga sínum vefur
Þétt um hjartans innstu þrá
Að hann megi henni hjá
Hvíla enn á ný
Hverfa svefns og vöku skil
Hugur saman reyrir
Það sem er og veitir yl
Og hitt sem ekki heyrir til
Hugarflugi gefur
Lausan tauminn, gleymir sér
Frestar því sem erfitt er
Svífur upp í ský
Hverfa svefns og vöku skil
Hugur saman reyrir
Það sem er og veitir yl
Og hitt sem ekki heyrir til
|
||||
7. |
Við dagsins hnig
03:24
|
|||
Glitrar enn í augum hinna
Ástkæra gull
Þótt finnist þér þín veröld skolast burt
Finnst hún vera nálægt
En aldrei skynjar nærveru
Hver skilur þegar aldrei er spurt?
Kemst ekki lengra að sinni
Líður út er skyggja fer
Aðeins sér nú það sem ekki er
Leggst undir feldinn við dagsins hnyg
(Felst fyrir vofum og hylur sig)
Situr í draumsins steingrýttu hlíð
Og starir móts tómsins látlausu smíð
Nú sýnist sem svo
Að þeir hreyfi við veggjum
Með heimana tvo
Sem kveða í kross og reyna að vekja þig
Munt alltaf glitra í augum mínum
Ástkæra gul
|
||||
8. |
Hvar
02:59
|
|||
Það hefst með birtunni
Hún læðist og skynjunin
Umbreytist, hver minning sem
Bærist með vindinum
Öldur sem teygja sig upp
Fyrr mun ég þegja
Ef má á reyna
Með hvatningu vindarins
Þá verður ekkert eins
Það á sér engan stað
Enginn kemst þar að
Umvafinn djúpinu
Hver maður er eyland
Öldur sem teygja sig upp á gráu klettana
Fyrr mun ég þegja og láta sem ég aldrei þekkt' hana
Ef má á reyna eftir önnur eins átjan ár
Með hvatningu vindarins
Þá verður ekkert eins
|
||||
9. |
Nú gleymist ég
03:29
|
|||
Hnepptur í nauð er vindar kalla
Lokast af með sjálfum mér
Er fárviðri herjar fjörðinn minn
Fastur í helli enginn heyrir
Hrópa en einskins verð ég var
Finn hvergi leið um göngin dimm
Held kyrru fyrir
Er sorg ber á dyr
Hörfa undan frostinu gráa
Vona að sárum verði hlíft
Við skriðum af fjallinu háa
Útaf lognast, kvöldið kveður
Langþreyttur hvíldar sofna ég
Hrekk aftur upp við brest
Er nóttina lengir versnar veður
Dagurinn sem aldrei varð
Um eilífð lokast göngin
Ég kemst aldrei héðan út
Held kyrru fyrir
Er sorg ber á dyr
Hörfa undan frostinu gráa
Vona að sárum verði hlíft
Við skriðum af fjallinu háa
|
||||
10. |
Til hennar
04:20
|
|||
Ég sendi þér í litlu ljóði
Ljúfust orða minna
Skáldið auma skreytir sig
Skugga vængja þinna
Sumrin liðu ljósum hraðar
Lýstu stjörnur vetur
Aldrei hafa áður tvö
Elskast lengur betur
Sú skamma stund er æskan okkur entist
Var sem draumur
Í tilhlökkun ég tæpast sá
Hvað tíminn var naumur
|
||||
11. |
||||
In a forest without any trees
Where feelings and memories
Superimoposed by an image of you
Are caught on the morning dew
Swim in a lake at the first light of day
Where children and swans go to play
Right in the wake of your perfect body
And sing of unity
An English garden where willows grow tall
Their shadows caught on a wall
The sound of weeping so soft in the breeze
A buzzle of falling leaves
A night has many shades
It can last for many days
And hurt in many ways
Like the force of a rising tide
When the moon floats by
|
||||
12. |
Tárin
03:23
|
Árstíðir Iceland
ÁRSTÍÐIR first emerged from the burgeoning Icelandic music scene in 2008, when the three founding members discovered their mutual love for vocal harmonies. Daniel, Gunnar and Ragnar amalgamate influences from classical compositions, folk rock, and minimalist soundscapes. ... more
Streaming and Download help
Árstíðir recommends:
If you like Árstíðir, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp